Lífvera í tilviljanakenndum heimi
hitt og þetta
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 506 dögum
Hrekkjarvaka
Leitarbox

Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 2 janúar
01.12.2007 20:20:07 / Hoochy Mama

munkurinn á sportbílnum

Ég sé svo eftir að hafa ekki gerst djörf og tekið upp myndavélasímann og fest þetta kodak móment á mynd.

Við sáum tíbetskan munk, og það er ekkert bull í mér því ég er búin að fá það staðfest að það sé svoleiðis klaustur þarna í grendinni. Það brann fyrir stuttu og þeir byggðu það aftur, en það kemur þessu ekkert við. Hann var sveipaður dumbrauðu klæði og var í öðru appelsínugulu innanundir það. Hann var asískur í útliti, veðurbarið andlit sem bar gleraugu með þykkri svartri umgjörð frá sjöunda áratugnum. Hann var niðurlútur í aumýkt sinni og bar þögla visku. Það vantaði bara tígrisdýrið við hlið hans og keðju til að tengja þá saman.

Nema hvað, þar sem við sáum hann var í hvítlakkaðri upplýstri straumlínulagðri Apple búðinni hérna í mollinu þar sem hann var að versla sér iPhone.

Birna skrifaði
Til hamingju med dagin stelpa:)
Hrabba skrifaði
arg búin að skrifa kommentið 2svar hér ... ýti alltaf á einhvern helv... takka!!! eniveis mér finnst þessi munkur bara töffari hehe hvað varst þú annars að gera þarna ... kaupa eitthvað spennandi?? Ég var að fá iPod Touch hann er svoooo mikill töffari eheh geggjað gaman að leika sér með hann ...enda var biðin mín löng Hans keypti hann fyrir mig í Seattle í September en ég átti ekki leið til Köben (Hans og Nadia voru að flytja til DK) fyrr en núna þannig að ég bara beið þolinmóð ;p en svona að lokum ... TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ :D alltaf gaman að eiga afmæli ... sérstaklega þegar maður á svona frábæra fjölskyldu og skemmtilega vinnu og býr á góðum stað ;) er það ekki annars heh ;D knús
Katrín skrifaði
hææ Til hamingju með afmælið á laugardaginn var:)
Hrabba skrifaði
hmm mér langar ekki í neitt í jólagjöf en mig gæti langað í ýmislegt ;) já Dagbjört þú færð sko ekki að gleyma íslenskunni þó að þú sért flutt út - ég mun herja vel á þér heeh :p Eigið frábær jól Knús
Dabba skrifaði
Endilega leiðrétta. En hvernig á þetta að vera þá......hvað langar þig? :)
Hrabba skrifaði
jebb hvað langar þig í jólagjöf :D

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 133709
Könnun
Hvoru megin á veginum á maður að hjóla/ganga?