Ef einhver hélt að hann væri að missa vitið og þykjast sjá mig gjúgga í borg á strætum Reykjavíkur þá get ég sagt að hann er heill heilsu.
Því í síðustu viku var ég stödd á Íslandi í 4 daga. það er bara fínt að koma þangað sem túristi en því miður var tilefnið fyrir förinni ekki gott. Hún
Gudda móðursystir mín lést. Hún á mikið inni hjá mér svo mér fanst ég verða að mæta í jarðarförina og kveðja hana þá hinstu kveðju.
Það var mjög gott að koma og hitta nánast alla vini og ættingja sem ég á. Ég verð svolítið leið yfir því að maður eigi eftir að missa af ýmsu sem gerist hjá ástvinunum. Það er ekki hægt að vera allstaðar en ég ætla að reyna að skerpa á þegar kemur að því að vera í bandi.
Það er eitthvað svo margir í kringum mig og þekkt fólk að deyja á fyrstu dögum ársins; Gudda, Bobby Fisher, Þórdís Tinna, Heath Ledger og svo var einn 37 ára í vinnunni bráðkvaddur. Vona að nóg sé komið.