Við hittum the easter bunny yfir brunch. Við reyndum mikið að etja Daníel í að láta taka mynd af sér með kanínunni eins og öll smábörnin, sem hann auðvitað þverneitaði að gera. Sú stríðni endaði með því að við vorum öll með á mynd.
Þetta er fjölskyldan sem við gerum allt með. Hittumst þrisvar þessa helgina og borðunum saman osfrv, æðislegt að eiga fjölskyldu svona nálægt. Þau eru öll rosarlega fín, eðlileg, vingjarnleg og með góðan húmor. Ég er heppin með tengdafjölskyldu, ég vissi það reyndar fyrir. En Dawn mágkonu hafði ég aldrei hitt fyrr en ég kom hingað í ágúst. Við eigum súper vel saman, ég tel hana sem góða vinkonu. Hún er klár kvenskörungur og heiðarleg, er ekkert að væflast með hlutina heldur kallar þá réttum nöfnum. Hún kennir 2.bekkingum, hann er sheriffs deputy (lögga sem flytur fanga) og tengdamamma er móttökuritari fyrir tannlækni.
Óska öllum gleðilegra páska. Öfunda ykkur af páskafríinu, hérna má ekki lengur halda uppá kristna daga. Ég fæ ekkert páskafrí.
