Lífvera í tilviljanakenndum heimi
hitt og þetta
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 497 dögum
Hrekkjarvaka
Leitarbox

Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 2 janúar
16.04.2008 23:39:15 / Hoochy Mama

blessuð blíðan

Sumarið byrjaði í síðustu viku með 23C gráðu hita, logni og heiðskírum himni. Ég veit ekki hvaðan á mig stendur veðrið. Grasið er grænt en það vantar ennþá laufblöðin á trén. Mig kítlar í hjartanu yfir tilhugsuninni að ég er ekki hérna sem túristi í 3 vikur heldur á ég heima hérna og fæ að njóta alls sumarsins.:haha:

Talandi um veður, veturinn var eitthvað sem maður er óvanur.  Það er kaldari hérna, oftast fyrir neðan frostmark og fór mest niður í 16 stiga frost. En það bærðist aldrei hár á höfði því enginn var vindurinn.8| Svo var oft heiðskýr himinn með sól svo maður fann lítið fyrir frostinu. 
Snjórinn hélst nærri því allan veturinn, jafnvel þó að hitinn færi í +5 gráður og rigning í nokkra daga, einhvernveginn hélst hann alltaf. Snjórinn kom í 3 kippum af "snow storms", þá var viðvörun í sjónvarpinu, skólum lokað og fólk sent heim úr vinnu. Ég fékk alveg kvíðahnút í magann því ég vissi ekki við hverju var að búast, en þá reynist snowstorm vera fallegur jólasnjór sem dalaði lóðrétt niður í flygsum (aldrei vindur muniði). Að vísu snjóaði um 30 cm í sólarhring, en það er sama, ekkert sem víkingur þarf að kippa sér upp við. Svo er mokað eftir þann snjóstorm og það helst þannig, þannig að það þurfti aðeins að moka 3 sinnum í vetur og samt alltaf snjór. 
Sem er frábært fyrir skíðafólk, en eftir 17 ára hlé er ég farin að fara á skíði. Það eru mörg flott stór skíðasvæði hérna í kring, það næsta í 20 mín fjarlægð. Ég á enn eftir að prófa allar brekkurnar þar svo ég á mikið eftir að prófa. Meðal annars Mount Snow í Vermont. Vildi bara benda skíðaáhugafólki á að það er líka hægt að heimsækja mig að vetri til og eyða dögunum á æðislegu skíðasvæði.

Það er aldeilis gúrkutíð hjá mér að tala um veðrið. Ég hef reyndar frá fleiru að segja (nei ég er ekki ólétt) en ég bara varð að koma þessu frá mér. 
Hrabba skrifaði
öss þetta hljómar bara eins og í Disney mynd - ÆÐI ;D Og víst þetta er svona og aðeins 20 mín í svæði þá er aldrei að vita nema maður skelli sér bara til þín einn veturinn til að skíðast yehhhh ;)..... farðu svo að koma með hinar fréttirnar :)
Guðrún Helga skrifaði
Vá mar....þú hefðir nú ekki átt að segja mikið um þetta hehehe. þá er sko von á mér, geggjað, þú ert sko ekkert smá heppinn og svona stutt frá...bara skrepp á skíði. En veðrið hjá okkur er líka allt á uppleið...en hér sést aldrei snjór né mínustölur á veturna. Knús gella
Birna skrifaði
Thu ert ad verda eins og eg. For a mbl.is um daginn og sa tha bara mynd af trjam med engum laufblodum a:( For i thunglyndi i 2 sec ad horfa a thetta. En vid vitum ekki hversu gott vid hofum thad fyrr en einhver segir manni thad. Mer hefur svo oft verid sagt hversu heppin eg se ad eiga heima thar sem allt er uti palmatrjam og solin skin 350 daga a ari, en eg aldrei hugsad meira um thad. Eftir ad eg keypti husid mitt a besta stad i baenum, horfi eg til himins a hverju degi og thakka Gudi fyrir allt lifid sem eg hef og ad geta buid i paradis;)

Heyrumst fljotlega
Dabba skrifaði
OMG ég sit úti á veröndinni fyrir aftan húsið hjá sundlauginni og er að lesa, sól og 25 stiga hiti. Ég þarf að klípa mig, því mér finst ég vera í sumarfríi bara í nokkrar vikur en átta mig á því að ég verð hér í allt sumar til að njóta.
Hrabba skrifaði
hahah þið eruð æði stelpur - njótið ;) ég fór út að labba áðan um Langasand á Akranesi - leit á mælinn og sjá 10°C uss bara hlítt .. fór út en það var ekkert hlítt ;( Samt fannst manni alltaf 10 gráður vera hlítt á vorin, hvað er að gerast!!?
Svandís skrifaði
Mig langar að vera í 23C hita *öfund*
Hvenær verður manni boðið í heimsókn? ;)
Fífa skrifaði
Hæ, fann bloggið þitt fyrir rælni. Dauðöfunda þig að búa við hliðina á svona flottu skíðasvæði.
Bryndís skrifaði
Rignir aldrei hjá ykkur? Bara svo þú komist inn til að blogga meira ;)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  15  Alls: 133417
Könnun
Hvoru megin á veginum á maður að hjóla/ganga?